Hvernig á að hugsa um skartgripi úr leir?

Þegar þú kaupir handgerða vöru eins og skartgripi þá viltu sennilega vita hvernig á að hugsa um þá svo þeir endist sem lengst. Ég hef farið bæði vel og illa með mína skartgripi og það er eiginlega ótrúlegt hvað þeir þola, en við tökum enga sénsa. Farðu vel með þá og þeir endast alveg ótrúlega lengi.

Polymer leir

Polymer leir er frábært efni í skartgripi. Hann er léttur, mjög fjölhæfur og þolir ýmislegt, sértaklega ef hann er bakaður rétt. En það er ekki bara polymer leir sem ég nota í skartgripina heldur allskonar mismunandi efni sem þjóna mismunandi tilgangi. Þar má nefna til dæmis lím, lakk, resin og svo auðvitað festingar og glingur.

Skartgripirnir frá Dálæti eru ýmist með eða án glans. Þeir sem eru með resin eða lakki eru með auka hlífðarlag á meðan hinir eru aðeins viðkvæmari fyrir til dæmis vatni.

Vatn og polymer leir

Polymer leir þolir vatn ágætlega en ekki ítrekað og í langan tíma. Einnig getur það haft áhrif á lím og annað notað í skartgripina.

Ég mæli með því að taka þá alltaf af þegar þú ferð í sturtu eða sund, bara til að lengja líftímann. Skartgripir með glansi þola raka aðeins betur en hinir, en það þýðir ekki að þeir séu vatnsheldir.

Sólarljós

Í almennri notkun þá þolir leirinn sólarljós vel – en ekki til lengri tíma eins og í geymslu.  Þú vilt semsagt helst geyma skartgripina þína í boxi, poka eða einhverstaðar þar sem ekki er beint sólarljós. Með tímanum getur leirinn nefnilega farið að breyta lit og hvítir gripir geta til að mynda fengið bleikan lit. Resin getur einnig gulnað ef þú geymir það í sólarljósi svo það er alltaf öruggast að geyma þá á dimmum stað.

925 silfurfestingar

Allir skartgripir frá Dálæti eru með 925 silfurfestingum og er því laust við helstu ofnæmisvalda og endist lengi.

En silfur getur dökknað eða ”fallið á það”.

Ef festingarnar byrja að dökkna getur þú prófað:

  • Silfurklúta sem eru litlir fægiklútar sem virka mjög vel á svona festingar. Dálæti er með slíka klúta og í náinni framtíð munu þeir fylgja með öllu skarti frá Dálæti.
  • Milda sápu og vatn á festingarnar. Hér þarf einmitt að passa að dýfa ekki leirnum í vatn líka, reyna að hitta bara á festingarnar.

Semsagt!

Ef þú átt skartgripi úr polymer leir þá er þetta leiðin til að láta þá endast sem lengst:

Vatn – Forðastu að dýfa þeim í vatn. Það er í góðu lagi að þurrka af þeim með rökum klút ef þeir verða skítugir.

Geymsla – Geymdu þá helst í myrkri þegar þeir eru ekki í notkun.

Þrif – Leir má þrífa með rökum klút og festingar með þar til gerðum klút eða mildri sápu.

En hvað ef eitthvað kemur uppá og skartgripurinn verður fyrir hnjaski?

Hafðu samband og við finnum lausn! Þetta er handverk og á bakvið það eru hendur sem þykja vænt um það <3

Ykkar,
Guðdís

Leave a Reply

Shopping Cart

Discover more from Dálæti

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading