UM DÁLÆTI

Hæ, ég heiti Guðdís

Ég hanna og framleiði skemmtilegri skartgripi með áherslu á nostalgíu úr íslenskri menningu, mat og drykk. Allt þetta fer fram á vinnustofunni minni á Eskifirði. Hver einasti lokkur er mótaður, bakaður og settur saman í höndunum.

Eyrnalokkar frá Dálæti

Hvað er Dálæti?

Skartgripirnir mínir eru fyrst og fremst skemmtilegir. Ég legg áherslu á nostalgíu og gleði, og vinsælustu lokkarnir eru þeir sem minna á góðgætið sem við ólumst upp með.

Allir gripir eru framleiddir og samsettir á Íslandi. Markmiðið er litríkir, fallegir og skemmtilegir skartgripir sem þú getur líka notað til að tjá þig. Leiktu þér, sýndu stuðning og vertu nákvæmlega eins og þú vilt vera.

SAGAN

Fæddist í fæðingarorlofi

Ég hef alltaf haft gaman af alls konar dundi og er meðal annars lærður naglafræðingur, bæði í gel og akrýl. Það reyndist ágætis grunnur fyrir skartgripagerðina.

Dálæti fæddist í fæðingarorlofi og hefur vaxið hægt og rólega síðan, og breyst heilmikið á leiðinni. Lengi vel bjó ég lokkana til meðfram annarri vinnu, en í dag sinni ég Dálæti í fullu starfi.

Bakgrunnurinn minn er annars í tæknigeiranum, þar sem ég vann lengst af við sölu, fyrirtækjaþjónustu og tækniþjónustu.

Unnið með verkfæri í leirlokkLokkur í vinnslu og tilbúinn eyrnalokkur á borðinu

Frá Keflavík til Eskifjarðar

Ég er fædd í Keflavík árið 1986 og ólst upp á Sauðárkróki. Öll fullorðinsárin bjó ég á höfuðborgarsvæðinu en er núna lent á Eskifirði.

Það er ekki alveg jafn fáránlegt og það hljómar, því ég á ættir að rekja á Austfirði. Hér er vinnustofan, og hingað koma allar pantanir áður en þær leggja af stað um landið.

Guðdís, hönnuðurinn á bakvið Dálæti
Hendur Guðdísar raða eyrnalokkum á spjald, úr innslagi Landans
SÉÐ Í SJÓNVARPI

Dálæti í Landanum

Landinn kíkti í heimsókn á vinnustofuna og fylgdist með því hvernig eyrnalokkarnir verða til. Innslagið var sýnt 1. mars 2026 og byrjar á mínútu 24:44.

Sérpantanir

Ég tek að mér að sérhanna skartgripi fyrir stóra sem smáa viðburði. Ertu með hugmynd eða vantar ráðgjöf?

Viltu snerta eða máta?

Dálæti fæst í Bóksölu stúdenta og Skynörvun í Reykjavík.

Átt þú verslun?

Passar Dálæti í hillurnar þínar? Sendu fyrirspurn og ég hef samband.

Karfan þín