Dálæti stendur í hamskiptum

Frá því að Dálæti leit fyrst dagsin ljós hefur það tekið miklum breytingum. Í upphafi var markmiðið að gera elegant skartgripi úr leir ásamt minimaliskum eyrnalokkum en það hefur heldur betur tekið U-beygju.

Í dag er Dálæti svo miklu meira en skartgripir. Dálæti er fjörugt, skemmtilegt og skapandi merki sem lífgar upp á hversdagslega hluti. Dálæti tekur hluti sem við elskum, hluti sem við söknum og hluti sem eru eða voru partur af daglegu lífi og gerir það ódauðlegt.

Og þess vegna tók ég ákvörðun um að slaufa minimaliska logoinu og mjúku litunum og poppa Dálæti upp í það sem það á skilið að vera – litríkt, skemmtilegt og eftirtektarvert!

Bjartari litir, retro útlit með skemmtilegum mynstrum er lendingin og ég verð að segja að ég er í skýjunum með útkomuna!

Ég hef nákvæmlega ekkert út á gamla logoið og brandið að setja, mér þykir rosalega vænt um það. Þetta er mitt fyrsta vörumerki og það heppnaðist mjög vel fyrir að vera byrjandi. Eini gallin var sá, að það passar ekki lengur við það sem Dálæti er og mun verða. Skemmtilegra, stærra og sýnilegra!

Hér eru allskonar sýnishorn af miklu skemmtilegra útliti fyrir miklu skemmtilegri skartgripi.

Þetta hefur verið eitt af mínum skemmtilegustu verkefnum hingað til. Það er ennþá eitthvað fínpúss eftir og alltaf eitthvað nýtt að dúkka upp eins og gengur og gerist.

Og til að halda öllu uppi á borði þá var þetta verkefni unnið í samstarfi við gervigreind. Þetta var ekki gert af gervigreind. Ég var með ákveðna hugmynd um hvernig ég vildi hafa vörumerkið. Litirnir eru aðlögun frá mínum upprunalegu litum. Markmiðið var Retro og meira líf og letur valið eftir því. Gervigreindin gaf mér hugmyndir að bestun og bjó til nokkra bakgrunna fyrir mig en flest öll hönnun er er unnin af mér í Canva og Affinity.

Takk fyrir að fylgjast með,

Ykkar,

-Guðdís

Shopping Cart

Discover more from Dálæti

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading