Snyrtivörur

Ragga er konan á bakvið snyrtivörulínu Dálætis. Hún hefur alla tíð haft djúpa tengingu við náttúruna og í gegnum árin hefur hún grúskað mikið með jurtir og náttúruleg efni. Því, við skulum vera hreinskilin, kemísk efni eru orðin allt of útbreidd og þau hafa áhrif bæði á heilsu okkar og umhverfi.
Hún stundar nám í grasalækningum og hefur fundið sinn tilgang í því að sameina þekkingu og ástríðu til að skapa náttúrulegar lausnir fyrir líkama, heimili og sál.
Vörurnar hennar eru handgerðar úr jurtum, náttúrulegum olíum og hráefnum sem bæði næra og virða jörðina. Þær eru fyrir fólk sem vill minnka óþarfa kemískt álag í daglegu lífi og velja náttúrulegri umhverfisvænni leið
“Fyrir mig er þetta ekki bara framleiðsla – þetta er leið til að lækna, deila þekkingu og sýna að náttúrulegt getur líka verið fallegt og nytsamlegt.”
Hugmyndafræði
Við trúum því að fegurðin felist í einfaldleikanum. Með snyrtivörunum frá Dálæti viljum við sýna hversu auðvelt og fallegt það er að hugsa vel um húðina með hreinleika náttúrunnar.
Af hverju Dálæti?
- Engin skaðleg efni – bara náttúran í sinni fegurstu mynd
- Mildari fyrir húðina
- Umhverfisvæn framleiðsla
- Hrein næring úr jurtum og náttúrulegum hráefnum
Vilt þú vita meira um vörurnar? Allar nánari upplýsingar um vörurnar, framleiðsluaðferðir og innihald er að fá með því að senda pósta á ragga@dalaeti.is.







